Nefmælt og Kokmælt

Þessi síða er stofnuð til að taka á móti tuði og puði tveggja kvenna. Hér ætlum við að fá útrás fyrir ýmislegt stórt og smátt sem angrar okkur, nútíma konur, í amstri hversdagsleikans.
Síðan er nafnlaus því stundum eru ástæður angurs okkar þeir sem minna mega sín (t.d. eiginmennirnir).

Hér skal einnig staðfest veðmál höfundanna sem snýr að fjölda barnabarna (skilgetinna og óskilgetinna). Við næsta sólmyrkva, sem verður 12.ágúst 2026, verða afkvæmin talin. Sú okkar sem tapar (á færri barnabörn), splæsir rauðvíninu sem verður drukkið af báðum, á þeim stað sem best á að sjást til sólmyrkvans á landinu, nánar auglýst síðar.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband