Jiiii hvað maður er orðinn gamall

Á þessu herrans ári 2007 eru löglega taldir sem fullorðnir einstaklingar á Íslandi allir þeir sem fæddust árið 1989.

-Þegar þau fæddust kunnir þú að skrifa, lesa, leggja saman, draga frá og hluta af margföldunartöflunni.

-Þau muna sama og ekkert eftir Reagan-tímabilinu og fréttu aldrei af því þegar reynt var að drepa hann.

-Þau muna heldur ekki eftir leiðtogafundinum sem haldinn var í Höfða og vita fátt um Gorbatsjoff.

-Þau voru ekki kynþroska þegar Persaflóastríðið hófst.

-Fyrir þeim hefur sami páfinn verið í Vatikaninu síðan þau fæddust.

-Þau sungu aldrei "We are the world, we are the children".

-Þau voru 5 ára þegar Sovétríkin féllu.

-Þau muna fátt eftir kalda stríðinu og síður eftir Austur- og Vestur-Þýskalandi, þó svo að þau hafi heyrt afþeim í sögutímum.

-Þau eru of ung til þess að muna eftir því þegar Challenger-geimflaugin sprakk og munu sennilega aldrei vita hvað Pepsi-áskorunin var.

-Fyrir þeim hefur AIDS verið til alla ævi.

-Þau léku sér aldrei með ATARI-tölvuleiki, geisladiskurinn kom á markaðinn 2 árum áður en þau fæddust, þau hafa aldrei átt plötuspilara og hafa sennilega aldrei leikið sér með Pac-man.

-Þegar talað er um BETA-vídeóspólur hafa þau ekki hugmynd.

-Star Wars og Súperman finnast þeim frekar slappar myndir og tæknibrellurnar ömurlegar.

-Mörg þeirra hafa ekki hugmynd um að einu sinni var ekkert til nema Ríkissjónvarpið sem fór í frí á fimmtudögum og í júlí.

-Þau muna heldur ekki eftir því þegar Rás 2 var eina rásin í útvarpinu fyrir utan Rás 1, og sú eina sem spilaði annað en klassíska tónlist.

-Þau hafa áreiðanlega aldrei hlustað á útvarpssögur eða Lög unga fólksins eða Óskalög sjúklinga og sjómanna og Bessi Bjarnason hefur aldrei verið ungur.

-Fá hafa séð svart-hvítt sjónvarp og þeim finnst fáránlegt að þurfa að hækka og lækka og skipta um stöð án þess að hafa fjarstýringu.

-Þau fæddust ári eftir að Sony hóf sölu á vasadiskóum og fyrir þeim hafa hjólaskautar alltaf verið línuskautar.

-Þeim hefur alltaf þótt farsímar og PC tölvur vera óskaplega eðlilegir hlutir, ekkert nýtt.

-Þau hafa ólíklega séð Húsið á sléttunni, Þórð húsvörð í Stundinni okkar og Einu sinni var.-Þau hugsa aldrei um "Jaws" þegar þau fara í sjóinn, Michael Jackson hefur alltaf verið hvítur...og hvernig er mögulegt að John Travolta hafi einhverntíman dansað, svona feitur maður! Olivia Newton-John? HVER??!!

- Þeim finnst lítið fyndið að vitna í Með allt á hreinu, Nýtt líf og Stellu í orlofi.

-Þau muna ekki hverjir Þorgeir Ástvaldsson, Geiri Sæm og Herbert Guðmundsson eru.

-Nafnið Hemmi Gunn segir heldur ekki margt.

-Madonna hefur alltaf verið fræg og nöfn eins og Duran Duran, Wham, Culture Club, Thompson Twins, Tears for Fears, Rickshaw, Limahl, Terence Trent D´Arby, Talking heads og Modern Talking hljóma ekki kunnuglega.

-Þau muna ekki eftir BMX-hjóla tímabilinu og break-dance tímabilinu.

-Þau hafa ekki hugmynd um hvað Millet-úlpur og Don Cano voru merkileg fyrirbæri.

-Þau vita sennilega ekki að strætó var einusinni grænn og að tíkallar og fimmtíukallar voru seðlar.

-Þau hafa aldrei keypt fimmaurakúlur og muna ekkert eftir því að hafa notað aura.

-Þau vita ekki hvað Karnabær var og hafa aldrei séð Tommaborgara sem merkilegt fyrirbæri.

-Þau hafa alltaf getað pantað mat heim og alltaf verið vön tilveru kreditkorta.

-Munið kæru vinir að þetta fólk er unga fólkið í dag.

Merki þess að þú ert farin/n að eldast:

1. Þegar þú lest þennan texta og brosir.; )

2. Þegar þú stundar íþróttir og lætur alla vita með miklu stolti.

3. Þegar þú geymir bækur, vatnsglas og vaselín á náttborðinu.

4. Þegar fyllerí og kelerí eru ekki lengur umræðuefni.

5. Þegar börn tala við þig eins og þú talaðir við "fullorðna fólkið" fyrir stuttu.

6. Þegar "fullorðna fólkið" talar við þig eins og jafnaldra.

7. Þegar þú þarft meira hálfan dag til þess að jafna þig eftir vökunótt.

8. Þegar vinir þínir eru allir giftir.

9. Þegar litla frændfólkið þitt er farið að sníkja sígarettur eða áfengi.

10.Þegar litla frændfólkið þitt veit meira um tölvur en þú.

11.Þegar þú getur farið á ströndina og eytt heilum degi án þess að fara í sjóinn.

12.Þegar þú stundar líkamsrækt í fötum sem fela líkamann í stað þess að sýna hann.

13.Þegar þú vilt frekar hitta vini þína í stað þess að kjafta klukkutímum saman í símann.

14.Þegar þú veist hvað þú vilt.

15.Þegar þér líst betur á afslöppunarkvöld en partýkvöld.

16.Þegar þú horfir á fréttir og Kastljós og hefur virkilega áhuga.

17.Þegar þú lest Moggann í heilu lagi og hefur skoðun á næstum öllu.

18.Þegar þú ert aldrei spurð/ur um skilríki.

19.Þegar þú og vinir þínir eruð farin að finna grá hár.

20.Þegar þú ákveður að senda þetta bréf til vina sem hafa áreiðanlega gaman að því.

Kokmælt Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Þau fæddust 10 árum eftir að Sony vasadiskóið kom á markað. Þau fóru reyndar ekki að sjást hér fyrr en 1981 eða þar í kring og voru óheyrilega dýr. Það haust keypti ég mér vasadiskó, sem var reyndar ekki Sony, ég man ekki hver framleiðandinn var, en hann var sennilega ekki frægur. Verðið var mjög hófstillt, þetta hefur kannski verið eitthvað eins og 40 þúsund að núvirði, annað en Sony-tækin sem kostuðu heil mánaðarlaun. Ég hlustaði aðallega á Stranglers, Talking Heads og Beethoven.

BETA-vídeóspólur voru notaðar í sjónvarpi þar til nýlega (eru kannski ennþá notaðar?).

BMX og breakdans hafa átt comeback, jafnvel oftar en einu sinni. Sömu sögu er að segja af Duran-Duran og Wham!

Ýmsar mýtur hafa orðið til um níunda áratuginn sem unglingum verður tíðrætt um. Eitt er "sítt-að-aftan" hártískan, sem í minni minningu var alls ekki svo áberandi. Ef ég ætti að nefna eitthvað sem var virkilega áberandi við þennan áratug, þá var það "sítt-að-framan" tískan. Rakað upp í hnakka og þykkur toppur sem náði niður að höku og var skipt á hlið.

Geisladiskurinn kom á markað 7 árum áður en þau fæddust. Fjórum árum áður en þau fæddust seldist geisladiskur í fyrsta sinn í milljón eintökum.

Rás 1 á Ríkisútvarpinu hefur aldrei bara spilað klassíska tónlist.

Mér fannst heldur aldrei fyndið að vitna í Með allt á hreinu, Nýtt líf og Stellu í orlofi, en kannski er það vegna þess að ég er ólæknandi menningarsnobbari ...

Elías Halldór Ágústsson, 30.9.2007 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband