Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
22.5.2007 | 19:29
Undarleg uppgötvun
Klósettþrif eru eitt það leiðinlegasta sem ég geri. Þess vegna reyni ég yfirleitt að ljúka þeim af snöggt og vel.
Tók mig til um helgina og vopnaðist hönskum, tusku, hreinsilegi og skrúbbum og réðist á gestaklóið. Þegar ég nálgaðist hitt baðherbergið smeygði Hann sér inn og sagðist hafa verið búinn að bíða svo lengi eftir að komast í rakstur. Ég nennti ekki alveg að bíða eftir því með hanskana, tuskurnar, skrúbbinn og hreinsilöginn svo ég sagðist ætla að skella mér í sturtu og bað hann um að þrífa bara klósettið þegar rakstrinum lyki.
Ég átti langa góða sturtuferð með öllu fylgjandi dúlleríi (sjá færslu hér að neðan).
Þegar ég stíg útúr sturtunni sé ég að Hann stendur með hreinsilöginn í hendinni og rýnir í brúsann. NB hann stillti sér þannig upp að það væri nú alveg öruggt að ég sæi hann um leið og ég stigi útúr sturtunni og að ég áttaði mig strax á að eitthvað væri að. Ég ákvað að skipta mér ekki af honum heldur þurrka mér í rólegheitum. Hann haggast ekki. Þá veit ég að hann mun standa þarna þangað til ég segi eitthvað svo ég spyr hann hvort það sé eitthvað vandamál.
Hann: "Ég er bara að athuga hvernig þetta virkar"
Ég: "Hva, hefurðu aldrei þrifið klósett áður - hehe?"
Hann: "Nei"
Ég: ... já ég sagði eiginlega ekki neitt, ég átti ekki orð. Mér leið eiginlega eins og asna, fífli og fávita í einum stórum pakka. Átti ég að trúa því að ég hafi búið með þessum manni í rúmlega 10 ár og að hann hafi ALDREI þrifið klósett?
Hann náði sínu ekki fram (sem var auðvitað að ég nennti ekki að kenna honum að þrífa klósett heldur myndi gera það sjálf) heldur sagð ég honum í stuttu máli hvernig þetta fer fram og svo yfirgaf ég hann.
Hann reyndi næstu taktík sem var að þrífa klósettið eins illa og hægt er að komast upp með þegar maður er með allar græjur.
Voru ekki einhverjir menntaskólakrakkar á Akureyri að gefa út DVD disk með leiðbeiningum um þrif á heimilum? Klósettum, örbylgjuofnum og fleiru? Það verður sko DVD í jólapakkanum hans!
Kokmælt
9.5.2007 | 09:26
Ljúfir dagar
Það er alveg agalegt þegar ég þarf að vinna svona frameftir á kvöldin. Ekki nóg með að Eiginmaðurinn þyrfti að gefa börnunum að borða heldur þurfti hann að koma þeim í háttinn líka. Enda var hann steinsofnaður ofan á rúmteppinu í öllum fötunum þessi elska, þegar ég kom heim á miðnætti.
Ég dreif mig að ganga frá í eldhúsinu áður en ég ýtti mjúklega við honum og aðstoðaði hann við að hátta áður en ég breiddi yfir hann sængina. Ég hreiðraði svo um mig á bríkinni og reyndi að sofna.
Börnin hafa greinilega verið agalega erfið við hann, því að hann var byrjaður að bylta sér um 5 í morgun. Verð nú að viðurkenna að ég varð hálffegin þegar hann brölti framúr, ég næði þá að breiða aðeins úr mér í litla rúminu okkar og festa almennilega blund.
Í svefnrofunum heyrði ég í honum frammi, stígandi á dót og reka sig í húsgögn (æji, hefði átt að taka betur til áður en ég fór inn að sofa). Ég var rétt að festa blund þegar hann kom aftur upp í, svo ég dreif mig aftur yfir á bríkina til að hann fengi nú aðeins að sofa þessi elska.
Það eru engin takmörk fyrir því hvað hann er alltaf hugulsamur við mig. Þegar ég fór framúr rúmlega 7 að vekja börnin og taka til morgunmat - sá ég að hann hafði skilið allt eftir á borðinu. Þar sem börnunum er illa við að mjólkin og ávaxtasafinn séu hálf-volg, setti ég það í ísskápinn auk smjörsins, ostsins og skinkunnar. Svo gekk ég frá brauðinu og hófst handa við að tína til morgunkorn og elda graut. Svo passaði ég ekki upp á að vekja hann á réttum tíma, þannig að hann var hálf stressaður að koma sér af stað, en hann var ósköp skilningsríkur við mig engu að síður.
Já það er nú meiri lúxusinn að vera svona vel giftur, best að halda áfram að vinna.
Kveðja og bros
Nefmælt
30.4.2007 | 10:40
Gamlir sénsar
Klukkan er 9 á sunnudagsmorgni. Þú ákveður að skjótast í búðina að kaupa nauðsynjar sem gleymdust í helgarinnkaupunum. Hugsar að það sé varla nokkur í búðinni á svona ókristilegum tíma og að það sé óþarfi að dressa þig upp og setja á þig andlit. Þú hefur ekkert fyrir því að fara úr eldgömlu og upplituðu joggingbuxunum og teygðu og toguðu peysunni, setur bara teygju í hárið í stað þess að greiða það og hleypur af stað.
Og hvað er það fyrsta sem þú sérð þegar þú gengur inn? Gamall séns! Og ef þú ert heppinn þá er hann með konuna sína með sér og hún lítur út eins og hún hafi verið að koma beint úr myndatöku fyrir Vogue.
Þetta bregst ALDREI! Ég held að þetta sé eitt af ófrávíkjanlegum lögmálum lífsins.
Og lærir maður af reynslunni? Ónei, ekki aldeilis.
Það eina jákvæða sem ég hef fengið útúr þessu gegnum tíðina er að ég áttaði mig á því hvað ég á marga gamla sénsa.
Kokmælt.
24.4.2007 | 21:35
Hvernig er þetta hægt?
Húsbóndinn á erindi við útlönd á morgun - heljarinnar skemmtileiðangur, veiðar, golf, vín og villtar meyjar (kallar með bumbu). Hann ætlar að vera í vinnunni eitthvað fram yfir 11 í kvöld, ýmislegt sem þarf jú að klára. Hann er ekki farinn að pakka, allt í lagi með það - en það sem ég skil ekki er að fötin hans eru öll óhrein og hann er ekkert að spá í að þvo þau. Kannski fylgir þrífikona með hótelherberginu sem sér um að þvo og strauja fyrir hann. Vona bara að hann taki hana með heim svo ég þurfi ekki að vera að hafa áhyggjur af þessu
Frú Nefmælt
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2007 | 21:57
Verkaskiptingartuð
2 af börnunum á leiðinni í próf á morgun. Mamman þarf að vinna að stóru verkefni. Pabbinn að vinna við tölvuna sína. Mamman hlýðir yfir barni 1, eldar svo matinn, leggur á borð, gengur frá eftir matinn, setur í uppþvottavélina, þurrkar af borðum, hlýðir yfir barni 2 og brýtur saman þvott í leiðinni, burstar tennur í börnum 1 og 2, fær þau í háttinn með fortölum, les fyrir þau, kúrir þau niður, hleypur 2svar sinnum til hvors barns til að "breiða betur yfir", "svara smá spurningu", "róa vegna prófkvíða" og "finna bangsa" og sest svo loksins við tölvuna til að sinna verkefninu.
Pabbinn kemur rétt í því að mamman sest:
"Ertu ekki lúin?"
"Þarftu ekki að taka þér smá hvíld?"
"Eigum við að spila? eða kannski horfa á mynd?"
"Þarftu að vinna verkefni? Getur það ekki bara beðið? Þú átt sko skilið smá hvíld núna!"
???? Er maðurinn að grínast?
Kokmælt
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)